Skilmálar og skilyrði
1
Almenn ákvæði
Sýningaljós slf, kt: 6409023450 VSK-númer 80399, Klettagata 12, 220 Hafnarfjörður.
(Hér eftir nefnt Sýningaljós) sér um leigu á ljósabúnaði og rafmagnstengdum búnaði, ásamt uppsetningu lýsingar fyrir Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýninguna, sem haldin verður dagana 22.–24. september 2026.
Með pöntun á þjónustu samþykkir viðskiptavinur skilmála þessa.
2
Þjónustan
Sýningaljós annast:
-
Leigu á ljósabúnaði og rafmagnstengdum búnaði.
-
Uppsetningu og frágang allrar lýsingar á básum og sameiginlegum svæðum.
-
Samræmda og örugga lýsingu á öllu sýningasvæðinu.
Þjónustan er veitt sem heildarlausn (plug-and-play) og er viðskiptavinur ekki heimill til að breyta uppsetningu, tengingum eða staðsetningu búnaðar án samþykkis Sýningaljósa.
3
Uppsetning og aðgangur
-
Uppsetning fer fram samkvæmt skipulagi sýningar og í samráði við skipuleggjendur.
-
Viðskiptavinir skulu tryggja aðgang að básum á tilgreindum uppsetningartímum.
-
Seinkanir eða skertur aðgangur geta haft áhrif á afhendingu og bera viðskiptavinir ábyrgð á því.
4
Notkun búnaðar
-
Allur búnaður er eign Sýningaljósa.
-
Óheimilt er að færa, aftengja, skipta út eða bæta við búnaði.
-
Notkun skal eingöngu vera í samræmi við leiðbeiningar Sýningaljósa.
-
Viðskiptavinur ber ábyrgð á tjóni sem rekja má til rangrar notkunar eða íhlutunar.
5
Ábyrgð og tjón
-
Viðskiptavinur ber ábyrgð á tjóni, tapi eða eyðileggingu búnaðar á meðan sýningu stendur.
-
Sýningaljós ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, tekjutapi eða tjóni sem rekja má til aðstæðna utan stjórnunar okkar (s.s. rafmagnsleysis, ákvörðunum skipuleggjenda eða force majeure).
-
Allur búnaður okkar uppfyllir gildandi öryggis- og rafmagnsstaðla.
6
Greiðslur
-
Verð eru samkvæmt samþykktu tilboði eða verðskrá heimasíðu okkar, syningaljos.is.
-
Sýningaljós áskilur sér fullan rétt vegna fyrirvaralausra verðbreytinga t.d. v/ prentvillna á heimasíðu okkar www.syningaljos.is
-
Öll okkar verð eru með virðisaukaskatti.
-
Greiða þarf strax við skráningu.
-
Sýningaljós heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
7
Lög og varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun okkar á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.
8
Persónuverndaryfirlýsing – syningaljos.is
-
1. Inngangur
Sýningaljós slf. leggur ríka áherslu á vernd persónuupplýsinga og að meðferð þeirra sé í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, þar á meðal reglugerð Evrópusambandsins (ESB) 2016/679 (GDPR).
Þessi persónuverndaryfirlýsing útskýrir hvaða upplýsingar við söfnum, í hvaða tilgangi, hvernig þær eru notaðar og hver réttindi þín eru.
2. Hvaða upplýsingum söfnum við?
Við söfnum þeim upplýsingum sem þú veitir okkur sjálf/ur, m.a. þegar þú: -
fyllir út eyðublöð á vefnum,
-
hefur samband við okkur,
-
pantar þjónustu eða sendir fyrirspurn.
-
Þetta getur m.a. falið í sér:
-
nafn,
-
netfang,
-
símanúmer,
-
samskipti og fyrirspurnir,
-
greiðsluupplýsingar (t.d. kreditkortaupplýsingar, sem eru unnar í gegnum örugga greiðslumiðlara).
-
Að auki söfnum við sjálfkrafa ákveðnum tæknilegum upplýsingum, svo sem:
-
IP-tölu,
-
gerð tækis og vafra,
-
upplýsingar um notkun vefsins (heimsóknartími, skoðaðar síður, samskipti við efni).
-
3. Tilgangur vinnslu persónuupplýsinga
Persónuupplýsingar eru notaðar í eftirfarandi tilgangi: -
til að veita og sinna þjónustu,
-
til að svara fyrirspurnum og eiga samskipti við viðskiptavini,
-
til að vinna úr pöntunum og greiðslum,
-
til að bæta virkni, öryggi og notendaupplifun vefsins,
-
til að uppfylla lagalegar skyldur.
-
4. Lagagrundvöllur vinnslu
Vinnsla persónuupplýsinga byggir á einum eða fleiri af eftirfarandi lagagrundvelli: -
samþykki þínu,
-
samningsskyldu,
-
lagalegri skyldu,
-
lögmætum hagsmunum Sýningaljósa, svo framarlega sem þeir ganga ekki gegn réttindum þínum.
-
5. Geymsla og öryggi gagna
Persónuupplýsingar eru vistaðar á öruggum netþjónum í gegnum Wix.com Ltd., sem uppfyllir kröfur GDPR um öryggi og gagnavinnslu.
Við beitum viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum til að vernda upplýsingar gegn óheimilum aðgangi, breytingum, miðlun eða eyðileggingu.
6. Miðlun til þriðja aðila
Við miðlum ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema: -
það sé nauðsynlegt til að veita þjónustu (t.d. greiðslumiðlarar),
-
það sé skylt samkvæmt lögum,
-
eða með skýru samþykki þínu.
-
Þriðju aðilar vinna þá eingöngu samkvæmt okkar fyrirmælum og í samræmi við GDPR.
7. Réttindi þín samkvæmt GDPR
Þú átt rétt á að: -
fá aðgang að persónuupplýsingum sem við höfum um þig,
-
óska eftir leiðréttingu á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum,
-
óska eftir eyðingu persónuupplýsinga („rétturinn til að gleymast“),
-
takmarka vinnslu persónuupplýsinga,
-
andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum,
-
fá gögn afhent á aðgengilegu formi (gagnaflutningur),
-
afturkalla samþykki hvenær sem er, án þess að það hafi áhrif á fyrri vinnslu.
-
8. Vafrakökur (cookies)
Vefurinn notar vafrakökur til að bæta virkni og greina notkun. Þú getur stillt vafra þinn þannig að hann hafni vafrakökum eða láti þig vita þegar þær eru notaðar.
9. Samskipti
Ef þú hefur spurningar um persónuvernd eða vilt nýta réttindi þín, geturðu haft samband við okkur:
Sýningaljós slf.
Netfang: info@syningaljos.is
Heimilisfang: Klettagata 12, 220 Hafnafjörður
10. Breytingar á persónuverndaryfirlýsingu
Sýningaljós slf. áskilur sér rétt til að uppfæra þessa persónuverndaryfirlýsingu. Breytingar taka gildi þegar þær eru birtar á vefnum.
%20(1).png)
.png)

.png)

.png)