top of page

Leiguskilmálar



Leigutími ljósabúnaðar hjá SýningaLjós skal í það minnsta vera tveir dagar, nema um annað sé sérstaklega samið.Upphaf leigu miðast við dagsetningu afhendingar í leigusamningi. Síðasti dagur leigu telst sá dagur sem getið er sem skiladags á búnaði í leigusamningi, sem er alltaf gerður við leigutaka. Sé búnaði ekki skilað innan hins umsamda tíma skal leigutaki greiða auka gjald fyrir hvern byrjaðan dag, auk alls kostnaðar sem Sýningaljós kann að verða fyrir vegna þess að búnaðurinn stendur ekki öðrum viðskiptavinum til reiðu á réttum tíma. Leigutaki greiðir allan kostnað af flutningi tækis. Ekki fæst endurgreitt eða gefinn er afsláttur af búnaði ef leigutaki getur af einhverjum ástæðum ekki notað búnað sem hann hefur tekið á leigu.


Leigutaki skal vera lögráða einstaklingur eða  lögaðili. Sá sem skuldbindur lögaðila ábyrgist gagnvart SýningaLjós að hann hafi til þess fullt umboð og skal sýna fram á umboð sitt að kröfu frá okkur, einnig tekur leigutaki persónulega ábyrgð á leigusamningi. Komi upp rökstuddur vafi að  okkar mati, um umboð þess er skuldbindur sig er SýningaLjós heimilt að taka hinn leigða búnað í sína vörslu á ný fyrirvaralaust og án allrar bótaskyldu hvenær sem er á leigutímanum.



Ábyrgð leigutaka er eftirfarandi

Með undirritun sinni staðfestir leigutaki að hafa tekið við hinum leigða búnaði ásamt fylgihlutum í góðu ásigkomulagi, einnig staðfestir leigutaki það að hafa móttekið og kynnt sér leiðbeiningar um notkun og meðferð hins leigða búnaðar. Leigutaki ber ábyrgð á því að farið sé að réttum öryggisreglum og notkunarleiðbeiningum frá framleiðanda, og SýningaLjós, við notkun, uppsetningu, frágang og flutning búnaðarins.

Búnaður í flutningi er á ábyrgð leigutaka.

 Hinn leigði búnaður er eign SýningaLjós. Leigutaki má ekki selja, leigja, veðsetja eða með nokkrum öðrum hætti afsala sér umráðum hins leigða búnaðar. Leigutaki ber einnig fulla ábyrgð ef búnaður tapast eða honum er stolið úr vörslu hins leigða. Ef Sýningaljós glatar rétti til hins leigða búnaðar vegna slíkra atvika þá ábyrgist leigutaki að greiða okkur fullt endurstofnverð hins leigða búnaðar án tillits til aldurs eða slits á honum.

Í stað þess búnaðar sem Sýningaljós glataði, skal leigutaki greiða leigu, Þar til nýr búnaður hefur verið útvegaður, auk alls afleidds tjóns sem Sýningaljós verða fyrir vegna missis hins leigða búnaðar. Leigutaki samþykkir að sýningaljós skuldfæri kreditkort leigutaka fyrir slíkum kostnaði.

Leigutaki ábyrgist sérstaklega að hann muni ekki nýta búnað frá okkur til lögbrota af neinu tagi, þ.m.t. brot á löggjöf um höfunda- og hugverkarétti. Leigutaki ábyrgist jafnframt greiðslur hverskonar leyfisgjalda og höfundarréttargjalda sem af notkun búnaðarins kann að leiða.

Leigutaka er óheimilt að nota hinn leigða búnað á öðrum stöðum en þeim sem koma fram í samningi. Ef nota á búnað utandyra skal hann tryggilega skorðaður eða festur og leigutaki skal útvega veðurvarnir á sinn kostnað, t.d. vatns- og vindhelt tjald yfir búnað.
Leigutaki ber ábyrgð á því að þeir sem koma til með að vinna með eða við hinn leigða búnað hafi fengið til þess leiðbeiningar og að jafnan sé nauðsynleg þekking til staðar til uppsetningar og notkunar hins leigða búnaðar.

Leigutaki ber ábyrgð á því að eftirlit sé með búnaði í notkun, og ávallt þar sem börn eru að leik, svo sem við „hoppukastala“ og önnur leiktæki.
Leigutaki ber ábyrgð á öllu tjóni sem kann að verða á hinum leigða búnaði eða af hans völdum, og má rekja til þess að ekki hefur verið farið eftir réttum reglum og leiðbeiningum um öryggi og notkun búnaðarins, eða eftirliti með búnaði í notkun hafi verið ábótavant.


Leigutaki ábyrgist að notaður sé réttur rafstraumur, rafspenna og jarðtenging í tengslum við búnað. Ef leigutaki hyggst nota hinn leigða búnað í tengslum við önnur tól eða tæki skal hann ábyrgjast að um samhæfðan búnað sé að ræða, sem ætlaður er til notkunar með búnaði frá okkur.


Fyrirvari um ábyrgð SýningaLjós:

SýningaLjós er á engan hátt ábyrgt vegna slysa eða skemmda sem orsakast af notkun, meðferð eða flutningi á búnaði sem er í útleigu.
SýningaLjós ber ekki ábyrgð á neinu óbeinu eða afleiddu tjóni, sem leigutaki eða þriðji aðili kunna að verða fyrir, hvaða nafni sem það kann að nefnast. Við erum ekki ábyrgt fyrir atvikum sem það hefur ekki eða getur ekki haft stjórn á, t.d. vélar- eða hugbúnaðarbilun, truflanir í síma- og fjarskiptanetum, rafmagnsleysi, truflun á starfsemi vegna náttúruhamfara og öðrum sambærilegum atvikum.

Leigutaki ábyrgist skaðleysi Sýningaljós af hverskonar kröfum sem fyrirtækið kann að verða fyrir af hálfu þriðja aðila í tengslum við eða vegna leigu á búnaði til leigutaka. Ef hinn leigði búnaður tengist með einhverjum hætti slysi sem veldur tjóni á búnaðinum eða öðrum eignum eða líkamstjóni skal leigutaki tilkynna okkur það án tafar sem og viðeigandi yfirvöldum.


Viðhald búnaðar og tilkynningarskylda
 Leigutaki ábyrgist að gengið sé vel um hinn leigða búnað og honum haldið hreinum meðan á leigutíma stendur. Leigutaki ábyrgist að ávallt séu notaðar við flutning og geymslu á hinum leigða búnaði nauðsynlegar hlífar og umbúðir. Leigutaki skal greiða allan þann kostnað sem SýningaLjós kann að verða fyrir vegna slæms frágangs á búnaði eða bilana sem leiða af slæmri umgengni við leigðan búnað, þ.m.t. fullt leigugjald á meðan á frágangi eða viðgerðum stendur sem og bætur vegna afleidds tjóns, þar sem búnaður stendur þá ekki öðrum leigutökum til reiðu.
Sérstaklega er áréttað að hér undir fellur vinna við þrif og pökkun hins leigða búnaðar. Leigutaki samþykkir að Sýningaljós skuldfæri kreditkort leigutaka fyrir slíkum kostnaði.

Hverskonar bilanir á búnaðinum skal leigutaki tilkynna okkur án tafar. Leigutaki má ekki undir neinum kringumstæðum reyna að gera við bilanir á hinum leigða búnaði án þess að hafa fengið til þess sérstakt leyfifrá okkur.
Kostnaður vegna vinnu og varahluta við framkvæmd eðlilegs viðhald fellur í öllum tilvikum á SýningaLjós sbr. þó það sem segir um kostnað við útkall viðgerðarmanns. Annar viðgerðarkostnaður, þ.m.t. vegna brota á skilmálum þessum eða leigusamningi, fellur í öllum tilvikum á leigutaka. Leigutaki samþykkir að SýningaLjós skuldfæri kreditkort leigutaka fyrir slíkum kostnaði.
 Ef leigður búnaður týnist eða skemmist að því marki að ekki svari kostnaði að mati SýningaLjós að gera við hann, ábyrgist leigutaki að greiða okkur fullt endurstofnverð hlutarins án tillits til aldurs eða slits á honum. Þar til nýr búnaður hefur verið útvegaður í stað þess týnda eða eyðilagða skal leigutaki borga fulla leigu, auk alls afleidds tjóns sem við kunnum að verða fyrir vegna eyðileggingar/hvarfs hins leigða búnaðar. Leigutaki samþykkir að við skuldfærum kreditkort leigutaka fyrir slíkum kostnaði.


Leigusamningur felldur niður:

Okkur er heimilt að fella niður leigusamning einhliða og án nokkurs fyrirvara eða bótaskyldu og taka í sína vörslu hinn leigða búnað hvenær sem er á leigutímanum í eftirfarandi tilvikum:

a) Þegar leigutaki hefur brotið gegn ákvæðum þessara skilmála, eða
                                                b) SýningaLjós hefur rökstudda ástæðu til að ætla að leigutaki muni brjóta gegn ákvæðum skilmála þessara eða leigusamnings.
Í báðum tilvikum heldur SýningaLjós rétti sínum til þess að gjaldfella ógreiddar skuldir leigutaka samkvæmt skilmálum þessum eða leigusamningi og nota hverskonar tryggingar sem leigutaki hefur lagt fram, þ.m.t. skuldfærslu á kreditkort leigutaka.

Tryggingar

Leigutaki skal tryggja hinn leigða búnað til samræmis við ábyrgð sína skv. skilmálum þessum nema annað sé tekið fram.


Framvísun kreditkorts leigutaka er skilyrði fyrir leigu sem trygging fyrir hvers konar aukakostnaði sem til getur fallið, svo sem vegna skemmda á búnaði, leigu ef búnaði er skilað of seint eða af öðrum ástæðum sem koma fram í skilmálum þessum. Leigutaki er þó ekki á nokkurn hátt skyldugur til þess að greiða leigu með kreditkorti, heldur er framvísun þess við gerð leigusamnings einungis trygging leigusala eins og greinir í þessu ákvæði.

Almenn ákvæði

Sé annað ekki sérstaklega tekið fram er gjalddagi leigu við afhendingu hins leigða , og getur SýningaLjós krafist greiðslu auk áfallinna dráttarvaxta hvenær sem er eftir þann tíma, sbr. lög um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001. Leigutaki samþykkir að SýningaLjós skuldfæri kreditkort leigutaka fyrir slíkum kostnaði.


Ef ekki hefur verið samið öðruvísi skal SýningaLjós vera heimilt að nýta þegar á gjalddaga allar hugsanlegar tryggingar, sem leigutaki hefur lagt fram, ef greiðsla hefur ekki verið innt af hendi.


SýningaLjós annast viðgerðar- og viðhaldsþjónustu á venjulegum opnunartíma fyrirtækisins, auk þess getur leigutaki hringt í þjónustutíma okkar utan opnunartíma. Á venjulegum opnunartímum okkar getur leigutaki kallað eftir viðgerðarmanni frá okkur á staðinn, sér að kostnaðarlausu ef hinn leigði búnaður er á höfuðborgarsvæðinu. Utan venjulegs opnunartíma okkar greiðir leigutaki kostnað við útkall viðgerðarmanns. Ef hinn leigði búnaður er utan höfuðborgarsvæðisins greiðir leigutaki í öllum tilvikum ferða- og flutningskostnað vegna útkalls viðgerðarmanns.

bottom of page